Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Einstaklega fallegur blandari úr 50's línu SMEG. Blandarinn er með fjórum hraðastillingum auk stillinga fyrir Smoothie, mulinn klaka og púlsvirkni. Skálin tekur 1,5 lítra / 6 bolla og ræsing er mjúk.

Blandaðu hráefnum fullkomlega saman við hvert tækifæri

Ávaxta og jógúrt smoothie að morgni, frískandi drykkur fyrir endurheimt eftir æfingu eða einföld og fljótleg súpa í hádeginu, allt verður leikur einn með blandaranum frá Smeg. Blandaðu hráefnum með mismunandi þéttleika fullkomlega saman við hvert tækifæri. Blandarinn er rúmgóður, fjölhæfur og hönnun hans er vandlega úthugsuð. Fjórar hraðastillingar gera þér kleift að aðlaga snúningshraða blandarans nákvæmlega að þínum þörfum og tryggir mjúk ræsing mótors varlega blöndun hráefnanna. Auk þess er blandarinn með forstilltu kerfi fyrir klaka, forstilltu kerfi fyrir smoothies og púlsvirkni sem eykur vinnsluhraða eftir þörfum með einni snertingu.

Vel hannaður úr gæðaefnivið 

Blandarinn er með TritanTM® plastskál sem er létt, höggþolin, hitaþolin og bisfenólfrí. Skálin kemur með gagnsæu loki með millilítramáli og dreypistút. Hnífarnir eru sterkbyggðir, úr ryðfríu stáli, þá er einfalt að fjarlægja og auðvelt að þrífa. Neðri partur blandarans er formaður úr heilsteyptu áli, botninn er með stömum fótum og stendur blandarinn þar af leiðandi traustur á hvaða yfirborði sem er. Auk þess er mögulegt er að vefja snúrunni upp og geyma í hólfi undir botni tækisins.

Aðlagaðu blandarann að þínum þörfum 

Mögulegt er að nota nýstárlegan og þægilegan brúsa með Smeg blandaranum í stað venjulegu skálarinnar og taka hann með sér hvert sem er. Þennan einfalda og nytsamlega aukahlut er hægt að panta og bæta við blandarann ef þú óskar þess. Brúsinn er tengdur beint við blandarann með tvöfalda hnífnum á milli, en með þessum hætti er mögulegt að útbúa smoothie beint inni í brúsanum sem þú tekur með þér. Eina sem þarf að gera þegar blöndun er lokið, er að fjarlægja tvöfalda hnífinn og skrúfa lokið á brúsann.

Alþjóðleg verðlaun 

Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg blandarar hafa fengið Good Design Awards, IF Design Awards og Red Dot Design Awards.

Leiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturRauður
Vörulína50's Retro Style
Snúningsrofi
Stjórnborð2 takkar: On/Off, Pulse
Litur rafmagnssnúruGrár

Stillingar

Aflstillingar4
Klaki - Ísmolar
Smoothies

Skálar

Skál1,5 L
Hráefni skálarTritanTM plastskál

Þægindi notanda

Stamur botn
Púls takki
Lok með millilítramáli
Mjúk ræsing
Yfirhitavörn
Mögulegt að vefja snúru undir tæki

Gæði

Hráefni skála0% BPA
Hitaþolin skál
Tvöfaldur hnífur úr ryðfríu stáli

Tæknilegar upplýsingar

Hæð39,7 cm
Breidd19,7 cm
Dýpt16,3 cm
Heildarafl800 W
Snúningar á mínútu - rpmmax 18.000 rpm
Spenna220 - 240 V
Þyngd3,65 kg
Skráðu þig inn til að sjá verð
Afhending