Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Giffard Grapefruit Alcohol Free er sérhannað fyrir óáfenga kokteila gert úr berki af greipávexti sem legið hefur í hvítvínsediki. Það hlýtur gullverðlaun árið 2024 í flokki Low/no alcohol hjá The Spirits Business. 

Bragðmikið og með minna sykurmagn til að undirstrika arómatíska eiginleika. Edikáhrif gefa kokteilum meiri dýpt, margbreytileika og lengd í munni. Giffard Alcohol Free gefur kost á að gera kokteila eins og Paloma, Daiquiri og auðvitað Spritz í áfengislausri útgáfu.

Gott jafnvægi á milli beiskju, sýru og sykurs. Vínkeimur getur birst innst í munni og skilið eftir smá sting.

Geymist í 4 mánuði eftir opnun, helst á dimmum stað. Þarf ekki að geyma í kæli. 


Skráðu þig inn til að sjá verð
Afhending