Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Einstaklega fallegur handþeytari úr 50´s línu SMEG. Handfangið er með þægilegu gripi og LED skjá, sem gerir þér kleift að telja niður mínútur og sekúndur við notkun. Ræsing er mjúk, hraðastillingar 9 og Turbo stilling til staðar. Hrærarar og deigkrókar eru úr ryðfríu stáli.

Afskaplega fallegur og vel hannaður 

Hönnun handþeytarans er vandlega úthugsuð, tryggir örugga notkun og sameinar bæði fegurð og fjölbreytileika. Handfangið er með þægilegu gripi sem varnar því að tækið renni úr höndum notandans og handhægur krókur til þess að losa fylgihluti er staðsettur fyrir neðan handfangið. Handþeytarinn er auk þess hannaður þannig að hann heldur góðu jafnvægi þegar hann er lagður á bakhliðina og því einstaklega notendavænt að leggja hann frá sér bæði eftir notkun og á meðan henni stendur.

Innnbyggður LED skjár

Stjórnborð með innbyggðum LED skjá er staðsett ofan á fallegu króm handfanginu. Einfaldir þrýstitakkar gera þér kleift að velja á milli níu hraðastillinga og aðlaga þannig snúningshraða handþeytarans nákvæmlega eftir þínum þörfum. Einnig er mögulegt að stilla niðurtalningu tíma á stjórnborði og láta handþeytarann telja niður mínútur og sekúndur við notkun. Upplýsingar um valda hraðastillingu og niðurtalningu tíma sjást á LED skjánum, en hverfa um leið og slökkt er á tækinu.

Aðlagaðu handþeytarann að þínum þörfum

Smeg 50´s handþeytarinn er fjölhæfur og frábær fyrir alls kyns matvinnslu og bakstur. Tækinu fylgja þrjú pör af mismunandi aukahlutum úr ryðfríu stáli sem tryggja bestu mögulegu virkni í hvert skipti og sér mjúk ræsing mótors til þess að hráefnum er blandað saman varlega. Hrærarar eru fullkomnir fyrir hálf-hörð deig, eins og smákökudeig og kökubotna. Vír-þeytarar henta fyrir loftkenndari matvæli eins og þeyttan rjóma, sósur eða eggjahvítur. Deigkrókar eru síðan sérstaklega hannaðir fyrir ger- og súrdeig, eins og pizzur eða brauð. 

Leiðbeiningar

Hönnun og útlit

LiturKremaður
Vörulína50´s Retro
StjórnborðÞrýstitakkar

Stillingar

Aflstillingar9
Túrbó virkni

Þægindi notanda

Stamt grip á handfangi
Sleppibúnaður
LED skjár
Telur niður sekúndur
Telur niður mínútur
Mjúk ræsing
Yfirhitavörn

Tæknilegar upplýsingar

Breidd220 mm
Dýpt100 mm
Hæð án fylgihluta171 mm
Heildarafl250 W
Spenna220 - 230 V
Tíðni50 - 60 Hz
Þyngd1,150 kg
Lengd rafmagnssnúru1,5 m

Fylgihlutir

Hrærarar2
Deigkrókar2
Vír - þeytarar2
Bómullarpoki undir fylgihluti1
Skráðu þig inn til að sjá verð
Afhending