Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Old Java blandan frá Te & Kaffi er dökkristuð og hefur súkkulaði og sírópskennda áferð og sykursætt bragð. Það hefur mikla fyllingu, milda jarðartóna og höfuga angan. Það er með mjög lága sýrni með örlitlu piparkenndu eftirbragði sem eykur á upplifunina. Á nýlendutímum var þessi kaffitegund seld dýrum dómum. Blandan dregur nafn sitt af því að hrákaffið sem var látið standa í vöruskemmu í 2-3 ár og á þeim tíma tapaði það mestu af sýrustiginu og jók við sig sætleika og fyllingu. Þessi aðferð er þó ekki stunduð lengur en við erum ánægð með að geta boðið upp á sömu bragðeiginleika og í þessari sögufrægu blöndu þrátt fyrir að aðferðirnar hafi breyst.

, Þessi vara er eingöngu seld í heilum pakkningum.
Skráðu þig inn til að sjá verð
Afhending